07maí

Vúhú!

 

Fáeinir mánuðir frá því að ég gladdi mannskapinn og bloggaði.

 Blogg í tilefni prófanna? Seeeegi svona. Fátt annað sem kemst að heldur en myspacið, leikjanet og svo mætti ég lengi telja áfram á meðan að próftímanum stendur. Hræðilegt.. Ofan á það þá var ég að fá allar sex and the city seríurnar og það er fátt ljúfara en að taka einn þátt á milli þess sem ég les glósur.. Verðlauna mér fyrir hvern hluta sem ég les.

 Ég fór í mitt fyrsta próf í dag, ekki var það af verri endanum. Saga átti hug minn og hjarta í gærkvöldi/nótt sem og ég vaknaði eldsnemma og las glósurnar fram og tilbaka.. Ég kann mig ekki. Kann ekki að læra fyrir próf.. Er eitthver sérstök regla? Ég bíð alltaf með lesning fram að síðustu stundu, sef of lítið og verð of skrýtin af magic-drykkju.


En ég er búin í prófum 19.maí. Þess má einnig geta að stúlkan verður 19 ára þann 16.maí svo látið þann viðburð ekki framhjá ykkur fara. Mér finnst það samt dulítið ógnvekjandi að vera orðin svona ,,gömul".


Ég er í losti yfir öllum þeim hörmungafréttum sem berast okkur í gegnum fjölmiðlana á degi hverjum.. og ber þá hæst að nefna Fritzl málið. Þvílíkur óbjóður, ef það er orð. HRÆÐILEGT.. Ég trúi ekki að það séu til svona illa gerðar manneskjur... Greyið börnin, dóttirin sem og fjölskyldan öll. Helst vildi ég að kauði yrði brenndur á báli... Geðveila.

 En nóg um slæmar fréttir..


Af mér er allt ágætt að frétta. Sumarið alveg að fara að bresta á, formlega er sumarið komið á. En veðrið er ekki að fylgja þeim skilaboðum.. Ég bíð eftir sól og hita, þá er komið sumar.


 Ég var kjörin formaður nemendafélagsins við Fjölbraut og mun sumsé vera formaður næsta skólaárs. Mikil tilhlökkun og hefur þetta verið ,,drauma-verkefnið" mitt frá því að ég var ung stelpa.. Dramatískt.
Við skipum fína stjórn, og vonandi eigum við eftir að standa okkur prýðilega...

Enn ég ætla að snúa mér  að lærdóm eða svefni.

 Við heyrumst heil! Gangi ykkur vel í próflestri!

07. maí 2008 klukkan 00:18
Eva Laufey Kjaran
Engin athugasemd
30mars

Ekki dauð úr öllum æðum

 Er dálítið slappur bloggari.. og þar af leiðandi ætla ég að punkta fyrir ykkur fáein atriði..

  • Allan bróðir fermdist fyrir tveimur vikum, orðinn táningur og aleiss.
  • Páskafríið var toppurinn á tilverunni.
  • Fór í æfingarferð til albír á spáni.
  • www.skagastelpur.bloggar.is <-- skemmtileg lesning...Brosandi
  • Ég var í herbergi með Keidí og Veru.
  • Ég og Keidí urðum wembley-meistarar, það var ekki nema sanngjarnt.
  • Er byrjuð að spila á miðjunni, það er ágætt. Púl og meira til...
  • Fórum í tívolí, búðir og aftur búðir. Eyddum slatta af pening.. Gripið og greitt! Nýr heimildaþáttur sem sýndur verður von bráðar..
  • Kíktum örlítið niður í benidorm, fór á bak á nauti með Ingunni.. Góð sjón þar.
  • Spiluðum leiki á móti völsung og íbv.. ágætis æfing. Unnum ÍBV en töpuðum á móti völsung..
  • En nú er ég uppgefin og nýt þess að hafa ekkert fyrir stafni.. (þó svo að ég ætti að vera að læra) eeeen.. hvað er það milli vina.
  • Frábær ferð, frábærar stelpur og sæmilegir þjálfarar :D
  • Haddi náði í mig í nótt, hann var búinn að kaupa nýjann bmw og kom mér aldeilis á óvart. Ekki amarlegt það :)
  • En nú ætla ég að knúsa litla barnið...
 Þakka lesninginn og afsaka hversu óspennandi færslan er..
30. mars 2008 klukkan 16:48
Eva Laufey Kjaran
1 athugasemd
24mars

spain

Fylgist med eldheitu bloggi á .. www.skagastelpur.bloggar.is 

 Gledilega páska og vonandi fengud tid fín páskaegg.. 

 
24. mars 2008 klukkan 20:27
Eva Laufey Kjaran
Engin athugasemd
13mars

Spangóla

Fátt er meira spennandi þegar lærdómurinn á að eiga hug minn allann að ráfa um internetið og finna þar merkilega og fræðandi spurningalista og þá sem að eiga sitt bloggsvæði. Ákvað ég að flippa og gera hið sama.. njótið vel =)

Nafn: Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Nickname ?
Eva. Annars hafa frændur mínir einkaleyfi að kalla mig Eyju.
Aldur ?
18 ára
Afmælisdagur ?
16.mai
Hjúskapastaða?
 Í sambúð með Haraldi.
Msn ?
eva_gangster@hotmail.com
Skóli ?
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi
Staður ?
Skipaskagi
Vinna ?
Bíóhöllinn
myspace:
/evalaufey
Áhugamál
Fjölskyldan mín, vinirnir mínir, fótbolti, hreyfing, pólitík, skólinn og margt fleira.
Systkini ?
Maren Rós, Guðmundur Jóhann og Allan Gunnberg.
foreldrar ?
Sigurrós og Steindór Óli.
Gæludýr ?
Engin einsog er..
Helstu vinir:
Allir vinir mínir bara. Get eigi valið svona.
J

Hefuru/ Hefuru eitthverntímann


Dáið áfengisdauða ?
Nei
Sofið hjá eitthverjum sem þú hefur þekkt innan við 1 viku ?
Nei
Kysst stelpu með tungu ?
Nei
Farið að grenja á almannafæri ?

Viljað líta öðruvísi út ?
Já auðvitað finnur maður eitthverjar feilur dagsdaglega.
Skrópað í skólanum ?
Jám…
Svikið vin þinn ?
Nei, það ætla ég rétt að vona ekki.
Verið ástfangin ?

Lent í ástarsorg ?

Valdið eitthverjum ástarsorg ?
Tja, er ekki alltaf erfitt fyrir báða aðila ef sambandið rofnar.
Haldið framhjá ?
Nei.
Tekið þátt í framhjáhaldi ?
Nei
Grátið þegar eitthver deyr ?

Grátið þegar eitthver hefur verið vond/ur við þig ?

Óskað þess að vera önnur en þú ert ?
Nei

Lamið eitthvern ?
Heldur betur ekki.
Brotið bein ?
Nei
Tognað ?


-- Ástin --

Hvernig var fyrsti kossinn þinn ?
Það kunn vera í 7.bekk og þá kyssti ég hann Hadda minn.
Er ástin bara kjaftæði ?
Alls ekki. Eitt af því merkilegasta sem við lendum í..
Hefur þér verið dömpað ?
Neei.
Hefur þú dömpað ?
Nei
Hversu mörgum alvarlegum samböndum hefuru verið í ?
Uhh.. ætli alvarlegasta sé ekki með honum Haraldi
J

Hitt kynið --

Hverju tekuru fyrst eftir ?
Persónuleika klárlega, svo spilar útlitið auðvitað dálítið inní.
Sítt eða stutt hár ?
Stutt
Hvað þarf gaurinn að hafa til að fá þig ?
Jæja.. ætli það sé ekki með persónuleika prins valíants.
Hvernig eru gaurarnir sem hafa fengið þig ?
Gaurarnir sem hafa fengið mig?! Ég hef verið mjög heppin í gegnum tíðina þegar það kemur að pjákum. Indælis drengir.
Ljóst, rautt, svart eða dökkt hár ?
Skiptir engu máli.
Hvernig týpu fýlaru ?
Hadda
Bad boy/Good boy ?
Pure
J
Augu ? 
Skiptir engu máli.. Göt einhverstaðar: Nei.
Brúna:
Jájá.

massaða:
Skiptir engu máli
Stóra:
Hæðin skiptir ekki miklu máli.
góða:
Já er það ekki fyrir öllu.
graða:
Jæja.. túlkið þessa spurningu að vild
                                                        
   
-- Vinirnir --

Hvaða manneskja veit mest um þig ?
Haddi áreiðanlega. Svo mínar nánustu vinkonur.
Hvaða vini þína hefur þú þekkt lengst ?
Ester Björk
Hvaða vini þína hefurðu þekkt stiðst ?
Er búin að kynnast svo ótrúlega mörgum og yndislegum manneskjum seinasta árið.
Hvaða vinur þinn er feimnastur ?
Kristín Thelma held ég..
Hvaða vinur þinn er fyndnastur ?
Allir vinir mínir eru fyndnir!

Hvaða vinur þinn er nánstur þér ?
Dísa, Björn og Birkir.
Klárasti vinur þinn ?
Ég svíf innann um eintóma snillinga.
Lúmskasti vinur þinn ?
Bergey Rún
Síðasta manneskja sem þú talaðir við á netinu ?
Guðmundur Böðvar.
Hvern talaðiru seinast við í síman ?
Mömmu mína
Hvaða vinur nennir að tala við þig um vandamál þín ?
Á svo marga góða vini sem nenna að hlusta á mig..
Hver er 2 fjölskyldan þín ?
Nú hin fjölskyldan mín.
Hvaða vinur þinn finnst þú alltaf vera skrítin ?
Svenna og Birki.
Hver er háværasti vinur þinn ?
Helga Ingibjörg ;)
Heima hjá hvaða vini varstu seinast ?
Evu.
Þekkja vinir þínir þig ?
Já annars væri þeir vafalaust ekki vinir mínir.

-- Síðasta/Seinasta manneskja --

Síðasta manneskja sem "turned you on" ?
Haddi
Síðasta manneskja sem þú fórst að versla með?
Evu held ég nú…

Síðasta manneskja sem særði þig ?
Engin.
Síðasta manneskja sem grætti þig ?
Það veit ég ekkert um.
Seinasta manneskja sem bjargaði deginum fyrir þér ?
Krakkarnir í algjör draumur.
Seinasta manneskja sem þú týndir ?
whad..
    -- Uppáhalds & flr --

Matur ?
Elska mat og get eigi gert upp á milli.. Fiskur er þó bestur.
Bók ?
Var að ljúka við ösku eftir Öldu Sigurðar, fín bók sú.
Mynd? The notebook, love&basketball og the wedding date klikka ekki.
Nammi ? Chúklit..

Litur ?
Hvítur, grænn, brúnn og blár.
Útvarpsstöð ?
Effemmníufimmsjöö..
Drykkur ?
Ískalt vatn, mildur morgunsafi og toppur með appelsínubragði.
Þættir ?
Sex in the city, desperate houswifes, friends ofl.
Söngvari/Hljómsveit ?
Elvis, Amy Whinehouse, Mika, bloodgroup ofl.
Leikari:
Gael Garcia er í miklu uppáhaldi hjá mér eftir að ég sá Kommúnu.
Leikona:
Reese Witherspoon.
Fataverslun ?
Júniform, Karen Millen, h&m, vera moda.
Málaru þig á hverjum degi ?
Já ég er oftast nær með sólarpúður, varasalva og maskara.
Safnaru neglum ?
Reyni það.
Hvort ertu meiri grænmetis – eða kjötæta ?
Tel mig vera alætu.
Borðaru morgunmat ?
Weetabix, er að reyna að byrja á þeim vana að snæða morgunmat.
Finnst þér gott að kúra ?
Snoozið getur verið of vinsælt..

Skoðaru þig reglulega í spegli ?
Jájá
Hvað er það helsta sem þú sérð eftir í lífi þínu ?
Sé ekki eftir einu einasta.
Hver er þín helsta ósk ?
Mitt að vita.
Hver er þinn helsti ótti ?
Það er auðvitað ef eitthvað skyldi henda þá sem að mér þykir einna mest vænt um. 
                                                                             
Já einsog þið gerið ykkur grein fyrir þá var þessu eingöngu gerður í því skyni að þið mynduð fá hið eina sanna tækifæri að kynnast mér betur. Weei :)

13. mars 2008 klukkan 00:10
Eva Laufey Kjaran
1 athugasemd
20febrúar

Monta mig







20. febrúar 2008 klukkan 19:47
Eva Laufey Kjaran
4 athugasemdir
04febrúar

Enjoy :)

  • Lélegur bloggari ég veit. Hef ákveðið að punkta-rita fyrir ykkur að þessu sinni :- )


  •  Writers-strike í U.S.A? Ég ákvað að slást í hópinn, fann þó fljótt að ég ætti ekki heima í því verkfalli.
  • Litli pjákurinn hennar Mæsu var skírður, Kristían Mar Kjaran. Ber nafnið vel og er hann myndar strákur. Líkist mér þegar ég var unglamb, michellen maðurinn erum við oft kennd við. Þeir sem að kannast við þann kauða geta rétt ýmindað sér hversu sætt.
  • Við Haddi fjárfestum í nýjum legacy. Fínn bíll og erum við salla ánægð með hann.
  •  Erum farin að búa. Erum búin að koma okkur vel fyrir í kjallaranum á vesturgötunni. :)
  • Svo setjum við stopp á allt annað. Ekki fara að búast af meiru frá okkur innan skams. Þetta er nóg í bili. Vil oft henda að fólki blikki mann dálítið og fari að spyrjast útí barneignir og hvaðeina. Vil benda á að við eigum nóg af börnum í kringum okkur sem er voða gaman að fá í láni, og skila.
  • Edda hálfsystir mín eignaðist sitt fyrsta barn í jan. Fallega stelpu sem hefur fengið nafnið Emilía.
  • Ég, Eva, Helena og Fríða fórum að borða á sólón og heim til Fríðu í meiri kræsingar. Hið ljúfasta kvöld, bíð eftir að Fríða komi endurnærð frá Hollandi svo við getum endurtekið leikinn.
  • Ég tognaði á hálsi við það eitt að líta til vinstri.
  • Leikritið komið á fullt skrið.. og fótboltinn gengur sinn vanagang. Skrifaði undir tveggja ára samning við ÍA um daginn. Góður dagur sem endaði með cambenbert og kexi..

Ætla að enda færsluna á fáeinum myndum! Njótið vel Koss

 
Ég í essinu mínu.                                          Gortin frænka.                                       Mæðgur að dást af litla manninum.








 

04. febrúar 2008 klukkan 00:32
Eva Laufey Kjaran
5 athugasemdir
24desember

Jólakveðja!

 Óska öllum vinum mínum nær og fjær gleðilegra jóla.
Ég vona að þið njótið ykkar yfir hátíðarnar og eigið yndislegar stundir með ykkar nánustu.
Svo sjáumst við nú flest ( Fyrir utan austlendingana auðvitað) á milli jól og nýárs útbelgd eftir fína matinn og gotteríið!

 Guð geymi ykkur og gefi ykkur gleðileg jól elskurnar.

   Ykkar Eva Laufey Kjaran

24. desember 2007 klukkan 17:14
Eva Laufey Kjaran
5 athugasemdir
06desember

Good old days!

 Ég sakna grunnskóla reyðarfjarðar hrikalega mikið.
Hef harla hugsað um neitt annað þessa dagana en hvað lífið var ljúft í þá daga.. Allir tímarnir hjá Þóroddi, Glúmi og Marleen. Allir íþróttatímarnir sem fóru í það að Ragna Jara tók bersesgang inní búningsklefa :) En það var nú alltaf í góðu..
 Grúppíju - tímabilið. Sofu-næturnar okkar saman... áts-kvöldin okkar þar sem við belguðumst út saman.

Good old days!

Var gráti nær þegar mér var hugsað til þessa daga í nótt þegar ég lá andvaka.
Danmerkuferðin og margt fleira!
Það er komið að því að halda reunion! Allavega sakna ég ,,æskuáranna" á Reyðó! (Reyðó-aust, það hefði verið vinsælt ef krakkarnir í mínum bekk hefðu þorað)


Fyrsta verk mitt eftir áramót er að heimsækja mína fríðu vini austan fyrir fjall :) 

 Það er hallæri á mér þessa dagana, hef náð mér í eitt stykki flensu sem er jú yndislegt, svona í prófunum. Hef ekkert betra að gera en að liggja í svitabaði löðrandi í hori. Neij oj. þetta er kannski ekki alveg það slæmt, en það liggur við.  Þarf að taka eitt sjúkrapróf og mér er illa við það.

Ég á fjögur próf eftir. Eitt á morgun og tvenn í næstu viku svo þetta sjúkrapróf. +
Ég náði þýsku sem ég tel merkilegan sigur, ég er jafn góð í þýsku og ég er að syngja.... 

Um helgina ætla ég að sofa, ná veikindum alveg úr mér. Vinna á broadway, eitthver fjáröflun fyrir fótboltaferðina sem við förum í um páskana. Við í 2fl. og m.fl ætlum að fara til Albir í viku og verður það án efa mikil gleði..

Svo eftir prófin verður farið í jólagjafainnkaup og dúllerí...

 Sara, Hrefna, Alex, Elsa fara bráðum til síns heima. Ætlaði að hitta þær um síðustu helgi og baka en veðrið leyfði ei. Ætla að reyna að hitta þær áður en þær fara. Sara lofaði að minnsta kosti að gera með mér jólakort.

Ég ætla að kveðja núna. Skrifa í bráð... Ætlaði bara að láta örlítið frá mér heyra. En myndin í síðustu færslu var nokkuð sæt, right? :)

Picture3.jpg


Yndislegar!

 

06. desember 2007 klukkan 15:27
Eva Laufey Kjaran
9 athugasemdir
18nóvember

Litli Eyfi sinn..

 
 Burtséð frá því að Kristían ,,Eyfi" sé að æla og móðir hans neyðir hann í myndatökur þá er hann hrikalega sætur og varð ég því að deila þessari mynd með ykkur, með eindæmum krúttleg!



18. nóvember 2007 klukkan 22:38
Eva Laufey Kjaran
6 athugasemdir
15nóvember

Næring fyrir mig og þig

 Fallerí fallera..

Ritstífla? Kallar maður það þegar maður hefur svosem ekkert vert að segja frá.
En verð ég ekki að láta vita eitthvað af mér héðan af skipaskaganum þar sem allt er svo hljótt og yndislegt :-)

 Menningarferð í dag/kvöld. Við höfum púlað af okkur rassin fyrir þessa ferð, en ekki nema 20 manns eða svo sem eru búnir að skrá sig. Kallar maður það ekki svolítið lélegt? Neei ég spyr svein. En annars ætlum við að fara til höfuðborgarinnar, snæða ljúffengan mat, fara í smá skoðunarferð um borgarleikhúsið og fara svo á söngleikinn Gretti.

Sönn næring fyrir líkama og sál!

Margt hefur þó drifið á daga mína að undanförnu, margt gott og margt slæmt. Bið bara guð að blessa og vona að allt fari eftir óskum!

Er byrjuð á eitthverri matardagbók! Huh.. eitthver skipun frá þjálfaranum okkar. En þetta er ágætt.. sér maður á svörtu og hvítu hvað maður er að éta vitlaust, þó svo að ég borði allt það rétta. Súrmjólk í hádeginu og seríos á kvöldin...

Mig langar austur næstu helgi! En næsta helgi er troðfull.. dimmetering, jólaball, staffaóvissuferð, ball með áms og síðast en ekki síst ferð með stelpunum í ía.. eitthvert út að borða og svona fínerí. Ekki amarleg helgi þó svo að ég verði nú ekki með í öllu..

Á morgun erum við að fara að keppa á selfossi + það að ég er að fara í dómarapróf. Verð hugsanlega orðin löggiltur dómari á morgun, hversu kúl?

Svo er planið að læra af sér eyrun, dansa af sér lappirnar og vinna einsog alki um helgina.

Ég ætla að fikra mig eftir eitthverjum míkrafóni hérna í skólanum og athuga hvort rödd mín mun vekja áhugan hjá nemendum til þess að skella sér með í menningarferðina í kvöld..

Lifið heil!

 


15. nóvember 2007 klukkan 10:18
Eva Laufey Kjaran
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Eva Laufey Kjaran
  • Staður: Akranes
  • Atvinna: Nemandi í FVA
  • Hjúskaparstaða: Haraldur minn
  • Um mig: Agalega venjuleg stelpa sem elskar Elvis!
  • Annað: Lifið heil!

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Eva Laufey Kjaran
  • Staður: Akranes
  • Atvinna: Nemandi í FVA
  • Hjúskaparstaða: Haraldur minn
  • Um mig: Agalega venjuleg stelpa sem elskar Elvis!
  • Annað: Lifið heil!

Klukkan